11.12.2008 | 16:23
Þessvegna geri ég kröfur um að allir .....
Það er rétt sem Göran Persson segir það verða allir að bera byrðarnar.
Ekki bara þeir sem minnst hafa launin. - LÍKA HINIR SEM SETTU OKKUR Í ÞESSAR SKULDIR.
Því geri ég þá kröfu að allir vinnandi menn og konur verði á sömu launum næstu 2 ár a.m.k., á meðan við erum að vinna okkur útúr skuldafeninu. -
Og þá á ég við alla, sama hvaða nöfnum þeir nefnast, og hvaða störfum þeir gegna.
Hvaða laun þarf fólk að hafa til að komast af? Á þeim launum verður þjóðin öll.
Hversvegna eiga sumir að geta lifað af 15o þúsundum á mánuði, á meðan aðrir þurfa að hafa 1.500.000. - eða fimmtánhundruðþúsund.
Og enn aðrir, eða þeir sem komu okkur í skuldasúpuna, fá allt upp í 7,5 milljónir á mánuði og þar yfir.
Krafan er: ALLIR VINNANDI MENN OG KONUR Á SÖMU LAUN.
400.000.- - 500.OOO.- ÞÚSUND Á MÁNUÐI. Á MEÐAN VIÐ ERUM AÐ KOMA OKKUR ÚT ÚR SKULDASÚPUNNI.
VIÐ HLJÓTUM AÐ VILJA SKIPTA LAUNUNUM JAFNT ALVEG EINS OG VIÐ SKIPTUM SKULDUNUM JAFNT.
VIÐ VILJUM RÉTTLÁTT ÞJÓÐFÉLAG.
Persson: Allir verða að bera byrðarnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Heyr, heyr og hananú!
Lýst afar vel á þessi "jafnaðarlaun"
Sigrún Jónsdóttir, 11.12.2008 kl. 16:36
Mér líst vel á þetta
Hólmdís Hjartardóttir, 11.12.2008 kl. 21:08
Já! Ég er ekki svo viss um að þá séu allir í sama bát og þurfi að leggjast jafnt á árarnar til að sigla Þjóðarskútunni yfir brimskaflana....
....og hvað þetta nú allt saman er sem nefnt er svo háfleygt þegar þarf að koma þjóðinni í skilning um að persónugera ekki vandann né vera að leita að sökudólgum.
En hugmyndin er góð!
Hrönn Sigurðardóttir, 11.12.2008 kl. 21:38
Núna er niðurskurðurinn að byrja og hvar ber þessa frábæru frjálslyndu umbótastjórn niður fyrst? Jú hjá bótaþegum TR.
Dásamlegt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 11.12.2008 kl. 22:12
Nú þarf fólk að láta í sér heyra, svo um munar. Hvar get ég lesið um þessa árás á öryrkja-og ellilífeyrisþega? Djöf... getur maður orðið reiður.
Núna þurfa allir að vera eins og kallinn á kassanum, hvar sem fleiri en tveir koma saman, þarf að standa upp og tala.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 11.12.2008 kl. 22:37
Mikið rosalega er ég sammála þér þarna Lilja mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.12.2008 kl. 11:32
Nú erum við að tala saman Lilja mín.
Anna Ragna Alexandersdóttir, 12.12.2008 kl. 12:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.