13.6.2008 | 11:16
Að gefa lífinu lit !
Ég skil vel að prestar vilji fá nýja litgreiningu, - maður getur ekki hangið í gamalli litgreiningu svo árum skiptir. -
Enda breytist tískan svo ört, að maður hefur ekki undan að panta nýja litgreiningu, hvað þá að láta sauma nýja prestabúninga í nýjustu tískulitgreiningarlitunum, - á prestalínuna. - Því stundum breytist litatískan á meðan pöntunin er í vinnslu. -
Og loks þegar allir prestarnir eru búnir að fá sína búninga, í réttum tískulitum, - Viti menn! Þá eru litirnir dottnir úr tísku.
Og þá er komin ný krafa um nýja liti, nýtt útlit, og nýja prestastefnu. -
Og aftur breytist allt............og ...... nýr litur er kominn í tísku, sem maður verður bara að fá sér, - enda er bleikt ... svo mikið inn þessa daganna, - og mikið notað af prestum í útlöndum. -
En Guði sé lof þá er sniðið svo gott sem það sama, ár eftir ár, það er aðeins vöxturinn sem breytist, - svo maður kemur sér bara upp dágóðu prestabúningasafni. -
Og fylgir þannig tiskunni. -
Eina sem ég hef áhyggjur af, er hvort hægt sé að fá "biblíur" í stíl.
Ég mundi nefnilega líka vilja eiga eina bleika, eina bláa, og eina í öllum regnboganslitum, því hún passar við svo margt. -
Þá verður ekkert mál að finna útúr þessu með sokkana. - Velti því fyrir mér hvort röndóttir sokkar geri sig ekki alltaf. - Þá þarf maður ekki alltaf að vera að kaupa nýja. -
Eða hvort ég þurfi að panta sokka í stíl, strax, svo allt sé í "setteringu". - En hvernig ætli það sé með hatta og hanska? - Þarf kirkjan að samþykkja það líka. -
Kirkjan skiptir litum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:50 | Facebook
Athugasemdir
Hahaha, þú ert litrík í dag, fórstu til bæna????
Spurning hvort snyrtirinn verður ekki ráðinn sem leiðbeinandi aðili fyrir þjóna guðs. Fólk verður að lúkka vel á meðan það flytur manni lífsreglurnar, ekki að ég sé ekki í öruggri fjarlægð frá öllum boðskap þessara manna.
Jenný Anna Baldursdóttir, 13.6.2008 kl. 11:21
Það virðist skipta meira máli að vera rétt "litgreindur" hvað sem það nú þýðir, - en að vinna þá vinnu sem "biskupinn" benti réttilega á í setningarræðu sinni á nýliðinni prestastefnu.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 13.6.2008 kl. 11:31
Hallgerður þarna er alveg svakalega vel og skemmtilega kveðið. - Þakka þér fyrir þetta. - Hvað heitir svo skáldið?., sem kvað svona skemmtilega?
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 13.6.2008 kl. 15:35
Frábær og litrík færsla hjá þér kona! Nú léttist á mér brúnin, ætla að fara að grilla kjúlla og fá mér smá rauðvín með mínum elskulega.
Ía Jóhannsdóttir, 13.6.2008 kl. 16:26
knús knús og bestu kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 13.6.2008 kl. 22:46
Reyndi ad skilja eftir sporin í dag en ílla gekk!
Prestar eru virkilega flottir og það er eitthvað við karlmenn í einkennisbúningi .... stundum eru grímubúningar nokkuð hot!
Léttum lífið með lit og hreinsun sálar!
www.zordis.com, 13.6.2008 kl. 23:17
Segðu mér eitthvað meira um Hafstein Stefánsson föðurbróður þinn, Hallgerður. - Orti hann mikið? - Hefur eitthvað verið gefið út eftir hann?
Það er gaman að heyra Ía, að, það er fleira sem gefur lífinu lit, en nýir litaglaðir "búningar.". - Vonandi hefurðu átt góða kvöldstund með þínum elskulega. - Áttirðu kannski kost á að sjá "Gríuna" í sjónvarpinu?
Takk eslku Linda mín! - og sömuleiðis vonandi hafið þið það öll, sem allra best!
Já, Þórdís, ég sé ekki sporin þín, en ég finn fyrir þeim. - Finnst þér í alvöru, einkennisbúningar flottir? - Ég hef nokkrum sinnum leikið í einkennisbúningum, og það verður að segjast eins og er, að þeim fylgja mismunandi tilfiningar, og þegar ég fattaði það, þá gerði ég mér líka ljóst, að kraftur eða vald einkennisbúninga gerist bara í höfði þess sem ber hann. - Þ.e.a.s. er algjör ímyndun. -
En grímubúningar geta verið skemmtilegir. - á grímuböllum.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.6.2008 kl. 00:24
Æ, Ía fljótfærnin háir mér stundum. - Innan gæsalappanna átti auðvitað að vera spurning um "GRÍMUNA" sem sýnt var beint frá, í sjónvarpinu í kvöld.
Elsku Linda mín sömuleiðis til þín!
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.6.2008 kl. 00:29
Jamm sko. Þetta var litrík og flott færsla. Eins gott að vera rétt litgreindur svo maður falli ekki langt frá norminu í tískuheiminum, sama í hvaða stétt maður lendir í á lífsleiðinni. Gaman að lesa mín kæra Lilja og eigðu yndislega helgarrest.
Tiger, 14.6.2008 kl. 23:51
Takk fyrir minn kæri TíCí, já, annars hélt ég að litgreining væri komin úr tísku, allavega er litgreining ekki lengur, tískufaraldur eins og hún var hér áður. - Það var enginn maður með mönnum nema að hafa farið í litgreiningu. -
Heitir það ekki núna að fara til "Ímyndarsérfræðings", sem finnur þá réttu "ímyndina" fyrir þig. - Sem mundi henta þér, til að koma þér til vegs og virðingar. -
Málið er bara, til vegs og virðingar hjá hverjum? -
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 15.6.2008 kl. 00:05
Fyrirgefðu fáfræðina TíCí, - litgreiningin er víst innifalin í greiningunni hjá "Ímyndarfræðingnum" ég bara vissi það ekki. -
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 15.6.2008 kl. 00:08
Mér hefur fundist í seinni tíð gaman að spá í kirkjulitina og er dálítið hissa að fjólublái liturinn sem er aðventulitur er frekar nýtt í kirkjunni - ég man ekki hvað þeir voru að segja í blöðunum, var það appelsínugult sem var liturinn?
Edda Agnarsdóttir, 15.6.2008 kl. 13:27
Hahahaha þú ert flottust
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.6.2008 kl. 14:37
Nei Edda, það er bleiki liturinn, sem er liturinn í ár. - þar næst skærblár litur, og silfraður sem er að koma svo mikið inn hjá þeim prestum, bæði hér heima og erlendis. - Svo er það sá "kóngablái" sem er næstur á óskalistanum, til að nota á jólu, og svona. - Segja þeir sem til þekkja. -
Appelsínuguli liturinn, gæti orkað tvímælis, maður veit þó aldrei, - þetta er allt orðið svo frjálslynt og opið. - Sem betur fer.
En hrifnust er ég af opnunarræðu Biskupsins á prestastefnunni, sköruleg og góð ræða. - Enda góður biskup.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 15.6.2008 kl. 18:38
Takk Ásthildur og vertu velkomin heim.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 15.6.2008 kl. 18:39
Ég hef tekið eftir þessu með litina. Það er t.d. alltaf verið að skipta um ól á mér, nú er ég komin með bleika.... verður örugglega kóngablá næst. Ég sem kunni svo vel við þá bláu......
kloi, 15.6.2008 kl. 21:55
Þakka þér fyrir Ægir, ég er nú ekki sérlega fróð um litatískuna heldur hef ég allan minn fróðleik frá prestunum sem m.a. er sagt frá í fréttinni sem ég vitna í hér að ofan. -
Svo hef ég fengið aukafræðslu frá áhugamanni um aukna litagleði hjá prestum sem hringdi í mig þegar honum ofbauð fáfræði mín um "ímyndar-sérfræðingana".
Elsku Klói minn! Það er auðheyrt að þú ert að verða fórnarlamb litaglaðra ímyndarsinnaðra eigenda. - Þú getur sagt þeim að fyrr gangirðu með "hárauða spöng" um hálsinn, - en "kóngabláan borða" fyrr má nú rota en dauðrota. - Enda er það bara harðasti "Íhaldsk...." sem ganga með kóngabláan borða um háls sér. - Og þú ert sko enginn afturhaldssinni Klói. - Þú sem ert af fornu Víkingakyni. - Elsku Klói þú hringir bara í mig ef að þú vilt að ég ættleiði þig. -
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 15.6.2008 kl. 22:35
Ég held að prestar séu komnir úr tísku! Eða voru þeir einhvern tíma í tísku ?
Himmalingur, 15.6.2008 kl. 23:52
Nú get ég ekki svarað þér Hilmar. - Eru prestar bara ekki jafn misjafnir og þeir eru margir. - Og sumir prestar virðast komast í tísku, en aðrir ekki, - en það er ekki þar með sagt, að þeir vinni ekki jafn vel sína vinnu, hvort sem þeir eru í tísku eða ekki. -
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 16.6.2008 kl. 00:13
Ég tek fólki alltaf með varúð sem fær borgað fyrir að segja mér sannleikann!
Himmalingur, 16.6.2008 kl. 00:17
Ertu að segja að prestar segi sannleikann ?
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 16.6.2008 kl. 00:29
Það fer eftir því hvað við teljum að sannleikurinn er!
Himmalingur, 16.6.2008 kl. 00:47
Já, Hilmar ! Mér fannst þú t.d. segja sannleikann á blogginu þínu, þar sem þú talar um illa uppalið ungt fólk, og hegðun þess á Akureyri. Virðingu fólks fyrir lögum og laganna vörðum. - Osfrv. osfrv. .....
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 16.6.2008 kl. 00:58
Við erum bæði alveg himnesk!
Himmalingur, 16.6.2008 kl. 01:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.