Í TILEFNI SJÓMANNADAGS EÐA HVAÐ .......? MANNRÉTTINDANEFNADAR ?

Kvótakerfi breytt í átt til niðurstöðu Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna ....osfrv. !  Kanntu annan?

NEMA AÐ NÚVERANDI RÍKISSTJÓRN ÆTLI Í ALVÖRU AÐ SKILA ÞJÓÐINNI AFTUR FISKVEIÐIAUÐLINDUM ÞJÓÐARINNAR. -  

Sem ríkisstjórnin er kannski að gera. -  því auðsætt er að framsal fyrrverandi Ríkisstjórnar á auðlindum þjóðarinnar er brot á Stjórnarskrá.

HERRA SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA !  -  ÞAÐ ÞARF EKKERT AÐ SKILA ÞJÓÐINNI AFTUR Í "SMÁSKÖMMTUM", -   ÞVÍ SEM ÞJÓÐIN Á NÚ ÞEGAR.  -   ÞVÍ ER HÆGT AÐ SKILA Í HEILU LAGI,  STRAX Á MORGUNN. - 

SAMEIGINLEG AUÐLIND OKKAR "FISKVEIÐIAUÐLINDIN"

SEM HEFUR VERIÐ NÝTT Í ÖLL ÞESSI ÁR AF EINSTAKLINGUM SEM EINHVERRA HLUTA VEGNA HAFA GETAÐ SÖLSAÐ UNDIR SIG AUÐLINDIR ÞJÓÐARINNAR, OG GERT AÐ SÍNUM. 

OG SÍÐAN FRAMSELT ÞÆR ÓPRÚTTNUM EINSTAKLINGUM SEM Í NAFNI GÓÐÆRIS FRAMSELDU ÞAÐ ENN ÖÐRUM GRÓÐAPUNGUM.  - 

HAFA NÚ ÞEGAR GRÆTT NÓG Á GRÆÐGINNI OG STULDINUM.  - 

ÞVÍ ER NÓG KOMIÐ, OG  NÚ TEKUR ÞJÓÐIN AFTUR ÞAÐ SEM ÞJÓÐINNI BER.  -

OG ÞJÓÐIN Á MEÐ RÉTTU. -

 OG HEFUR ALLTAF ÁTT. -  SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁ,.

OG EKKI ER HÆGT AÐ FRAMSELJA SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁ : -  SJÁLFAR AUÐLINDIR ÞJÓÐARINNAR

 


mbl.is Ekki forsendur til að greiða skaðabætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hef ekki trú á að þetta verði virt.  Hagsmunir greifanna of stórir og miklir.  En ég vona.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.6.2008 kl. 08:12

2 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Já, Hallgerður ég er sjómannsdóttir, faðir minn var líka einn af þeim sem stofnaði "Sjómanna og verklýðsfélög" um allt land.  -  Hann var mikill baráttumaður. - 

Annars var pabbi minn "Búfræðingur" að mennt. - Og vann við það jafnhliða sjómennskunni lengi vel. - Á sumrin var hann ráðgjafi bænda í ræktun landsins. -  En haust, vetur og vor, var hann svo á sjó.

Svo var stóri fallegi bróðir minn líka sjómaður og Skipstjóri.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.6.2008 kl. 10:30

3 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég er alveg fullkomlega sammála þér Jenný, ég hef heldur ekki mikla trú á að þetta verði virt.  -

 En maður má samt ekki gefast upp, maður verður að trúa því að hið góða sigri að lokum. -

 Og þá helst vegna skynsemi mannanna, en ekki vegna þess að misvitrir pólitíkusar hafi neyðst til að beygja sig. -

Fyrir Náttúruöflunum.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.6.2008 kl. 10:34

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Mikið væri nú gott að fiskinum "okkar" væri skilað. Þetta fjandas kerfi hefur farið illa með sjávarpláss hringinn í kringum landið.

Hólmdís Hjartardóttir, 2.6.2008 kl. 11:01

5 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég er alveg hjartanlega sammála þér Hólmdís. -

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.6.2008 kl. 11:20

6 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Tek undir með ykkur stelpur mínar. Það er nú meira hvað það er alltaf auðvelt að koma hlutunum á en erfitt að breyta þeim. Sjáiði bara eftirlaunalögin. Það var ekki flókið að setja þau á sínum tíma en mikið skelfing eru það margbrotin málefni sem taka þarf tillit til þegar talað er um að afnema þau.

Steingerður Steinarsdóttir, 2.6.2008 kl. 13:36

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Akkúrat Steingerður !  En taktu eftir því að bæði þessi mál, eftirlaunalögin og kvótamálið, eru, þegar grannt er skoðað, brot á Stjórnarskránni. -

Það hefði þurft að breyta Stjórnarskránni til að geta samþykkt þessi lög,  segja lögfróðir menn. - 

Og fyrrveradi nefndarmenn í Stjórnarskrárnefnd.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.6.2008 kl. 13:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband