23.7.2008 | 21:21
Þetta er glæpur !
Ökumaður þessarar bifreiðar sýnir þarna af sér glæpsamlega hegðun. - Vítavert gáleysi, er of vægt til orða tekið. - Ég mundi segja tilraun til manndráps. - Hann ætlar sér þarna að fara famúr þéttri bílaröð þar sem er bíll við bíl, á tvöfaldri heilli línu, í beygju, við gatnamót. - Margfaldur brotavilji. - Svona ökumaður á ekki að hafa ökuleyfi. -
Ökumaðurinn er auðsjáanlega að flýta sér inn í eilífðina, og svífst einskis til að ná fram ætlun sinni.
Hættulegur framúrakstur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki nóg með að þeir séu að flýta sér inn í eilífðina, þeir hafa ekkert á móti því að taka aðra með sér (blót og ragn ekki prenthæft).
Ég saknaði þín.
Jenný Anna Baldursdóttir, 23.7.2008 kl. 21:36
Því miður hef ég séð þetta of oft hér á milli borgar og Selfoss, af þeim sökum erum við hætt að vera á ferðinni í mikilli umferð. Þetta er hryllilegt og skilar engu. Ertu ekki annars þokkaleg hress mín kæra?? kveðja og knús
Ásdís Sigurðardóttir, 23.7.2008 kl. 21:42
Já, Jenný það er nefnilega það að þeim er "skítsama" um þau mannslíf sem þeir ógna með aksturslagi sínu. - Og því á fólk sem svona hagar sér ekki að hafa bílpróf, stundinni lengur.
Saknaði þín líka hef ekki haft aðstöðu til að vera mikið á blogginu.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 23.7.2008 kl. 21:55
Satt segirðu Ásdís þetta skilar engu nema fjölgun alvarlegra umferðarslysa, og ótímabærra dauða saklausra vegfarenda sem eru svo óheppnir að vera á ferðinni á sama tíma og þessir óhugnanlegu ökuníðingar. -
Jú, jú ég er hress, er núna að jafna mig eftir smáaðgerð, þar sem allt gekk að óskum og allt er samkv. áætlun. Knús og kærleikskv. LG
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 23.7.2008 kl. 22:03
Ég hef ósjaldan lent í því á leiðinni milli Rvk og Selfoss að það taki bílar fram úr mér á tvöfaldri heilli línu! Það er eiginlega regla fremur en undantekning að lenda í þannig framúrakstri á þessari leið. Samt þyki ég nú ekki keyra neitt tiltakanlega hægt.
Hrönn Sigurðardóttir, 23.7.2008 kl. 22:13
Þetta er óhugnanlegt að heyra Hrönn, en ég veit að þetta er satt. - Það er því miður alltaf fullt af vitleysingum sem liggur "lífið" á. -
Það sem mér finnst sárast er að þessir ökufantar, fórna lífi og limum saklausra vegfarenda, sem ekkert hafa til saka unnið.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 23.7.2008 kl. 22:21
verst hvað margir eru á vegunum undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.
Hólmdís Hjartardóttir, 24.7.2008 kl. 00:09
Þetta myndband er náttúrulega bara fáránlegt, ég tek undir óprenthæfa bölvið og ragnið hennar Jennýar og bæti talsverður sóti við það!
Ingibjörg Hinriksdóttir, 24.7.2008 kl. 00:11
Ég tek heilshugar undir óprenthæft blót og ragn sem aðrir hafa ýjað að! Mér finnst að fólk sem keyrir svona ætti að vera ákært og dæmt fyrir tilraun til manndráps - því hvað er þetta annað? Ég vil líkja þessu við að sveifla skambyssu og skjóta af handahófi út í loftirð í mannþröng. Hvernig ætli yrði tekið á því?
Náðist ekki bílnúmerið?
Lára Hanna Einarsdóttir, 24.7.2008 kl. 01:54
Er alveg sammála ykkur öllum , það er stórhættulegt að vera úti í umferðinnni orið fyrir svona fólki.
Kveðja Guðrún Ing
Aprílrós, 24.7.2008 kl. 04:16
Knús og bestu kveðjur til þín frá mér
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 24.7.2008 kl. 17:39
Hárrétt, verst er að þeir eru ekki af flýta sér inn í eilífðina, hafa ekki einu sinni vit á því að hugsa það fyrir spennufíklinum sem í þeim býr, eina ráðið við svona gaura er prófsvipting til 5 ára eða lengur.
Tek svo sannarlega undir allt óprenthæft.
Knús kveðjur
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.7.2008 kl. 08:57
Ég verð vitni að svona akstri næstum í hvert skipti sem ég ek austur yfir fjall. Það á að svipta svona ökumenn ökuleyfinu.
Ágúst H Bjarnason, 25.7.2008 kl. 22:02
Sammála þér þarna, ótrúleg bíræfni og brotavilji. Það ætti að svifta slika ökumenn leyfinu á staðnum. Því líkt og annað eins. Annars knús á þig inn í helgina Lilja mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.7.2008 kl. 11:16
ÞAÐ Á AÐ SVIPTA SVONA ÖKUMENN MEÐ BROTAVILJA Í AKSTRI ÖKURÉTTINDUM Í LANGAN TÍMA OG LÁTA ÞÁ TAKA PRÓFIÐ AFTUR..
Magnús Paul Korntop, 26.7.2008 kl. 11:24
Það eru ótrúlega margir ökumenn svona
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 19:47
skelfilegt að sjá þetta því miður alltof mikið af svona bílstjórum.
Knús
Guðrún Jóhannesdóttir, 30.7.2008 kl. 09:09
já því miður er þetta allt of algeng sjón veit svei mér þá ekki hvað svona fólk hugsar kannski ekki neitt nema um sjálfan sig og að það gæti komið 5 mínútum á undan hinum heim erum oft drullusmeik á þjóðvegum landsins og oft bölvað yfir svona ökuföntum sem stofna öllum í hættu keyrði einmitt framm á hræðislegt slys á síðustu helgi út af frammúrakstri vona að Guð gefi það að komandi verslunarmanna helgi skili öllum heilum heim og ökufantar þessa lands verði bara heima sér knús á þig elskuleg
Brynja skordal, 31.7.2008 kl. 10:03
Knús knús og góðar kveðjur.
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 2.8.2008 kl. 20:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.