13.3.2008 | 14:44
Hef lofað mér á stefnumót í kvöld, jamm... við Gabríel Sv....
Hef lofað sjálfri mér stefnumóti í kvöld kl: 22:20 á Rás1, við Gabríel hans Sveins Einarssonar. Gabríel ætlar að spjalla um samskipti sín, við, Guð og ýmsa samstarfsengla sína. Líklega er honum þó, efst í huga, verkefni, sem hann er hvað þekktastur fyrir: Þegar hann boðaði Maríu ................................. þið vitið. - Í kvöld ætlar Gabríel loks, að leysa frá skjóðunni. Ég er mjög spennt. Því ég hef aldrei verið með þetta alveg á hreinu. - Ef til dæmis ... - nei, ég ætla ekki að vera með neinar bollalegningar, ætla bara að mæta í kvöld kl: 22:20, með útvarpstækið mitt stillt á Rás1. Veit að þarna verða Gabríel til halds og trausts, leikaraséníin þau, Gunnar Hansson, Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, og Valur Freyr Einarsson. Og enginn annar en Sveinn Einarsson stjórnar umræðum. Þetta verður spes kvöld, í kvöld. Snillingurinn hann Sveinn kemur manni sífellt á óvart. - Heyrumst í kvöld kl: 22:20
Athugasemdir
Aha athyglisvert. Vona að tölvan klikki ekki í miðjum klíðum. Hún er búin að vera að bögga mig undanfarið.
Ía Jóhannsdóttir, 13.3.2008 kl. 15:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.