13.2.2008 | 14:49
Hætt að skrifa um pólitík ....
Ég er hætt að skrifa um pólitík nú verða þeir meirihlutanum í borgarstjórn að dansa sjálfir, bara að hysja upp um sig buxurnar og binda fastar á sig dansskóna og láta sig hafa það að skella sér með í Óla Skans, og til að létta sporin er gott að láta sig hafa það að raula með gamla góða textan um hann "Ólaf Fans" en viðlagið er svona: - "Óli, Óli , Óli fans, voðalega kargur er hann Villi vinur hans.".. osfrv. - Og sporin eru 3 skref fram á við og 13 skref afturábak..... - Svona var gamli góði textinn: Óli skans Óli Skans ógnarvesalingur , Villi hans , vinur hans, veit nú hvað hann syngur, - og þá kom viðlagið. - Óli ÓLi Óli fans voðalega kargur er hann Villi vinur hans . osfrv. og endur tekið eins oft og þurfa kann. Gangi ykkur vel. Og næst hristum við upp í Kokkinum sem við Kabyssuna stóð. Á morgun ætla ég að tala um ástina. Kv. LG
Athugasemdir
Hlakka til að heyra um ástina. Mér finnst ástin svo skemmtileg!
Garún, 13.2.2008 kl. 21:28
Ohh mamma það rifjaðist upp fyrir mér öll þau skipti sem við dönsuðum saman á lindargötunni Óla skans :) hahah :) á svo margar svona yndislegar minningar.
knús og koss a þig sæta mín
Ingunn Valgerður Henriksen (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 21:33
Hætt í bili? ónei þetta er bara rétt að byrja :) þú ert góður penni mútta mín og að sjálfsögðu heldur þú áfram þínum skrifum.
Ingunn Valgerður Henriksen (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 01:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.